samkvæmt pdf skjali um þetta tiltekna reiðhjól, þá er það 60kg að þyngd.
http://www.suzuki.is/2010/ELGO/ELGO.pdf
Það þykir mér þungt reiðhjól.... og ekki væri ég til í að fá það á mig á 25km/klst hraða. Þetta er undarleg niðurstaða, að vespa sem augljóslega er mótorhjól (en ekki reiðhjól) skuli flokkast sem reiðhjól.
Undarlegri þykir mér niðurstaða Lögfræðings umferðastofu, að ekki sé ástæða til að endurskoða þennan hluta laganna.
Svo er það klausan um að mönnum beri að nota eitthvað sem flokkist sem reiðhjól á gangstígum, einkennileg, því samkvæmt umferðalögum eru hjólreiðamenn gestir á gangstéttum og gangstígum, en eiga mun meiri og sterkari rétt á götum, þar sem reiðhjól flokkast sem ökutæki samkvæmt umferðalögum og reyndar er tekið fram að þau beri að nota í hægri jaðri gatna.
Vespan skal flokkast sem reiðhjól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jamm þetta er háundarlegt. Marta eða forstjóri Umferðarstofu ætti að koma með leiðréttingu hið snarasta.
Morten Lange, 15.7.2010 kl. 11:00
Hér er úr athugasemd minni á boggi SiggaMagga :
Getur verið að Marta lesi ekki umferðarlögin í samhengi og rangtúlki orðin í lok málsgreinar þannig að orðin eigi við ekki bara málsgrein c (um hlaupahjól og þess háttar) , heldur a (venjuleg reiðhjól) og b (Vélknúinn hjólastóll ) líka ?
Hér eru skilgreiningar um reiðhjól í heild (úr núgildandi lögum . sem eru ansi ruglingsleg):
Og svo til áréttingar : Í lagagrein sem fjalar um reiðhjó, þá telst ekki 60 kg tæki sem lítið, á borð við rafknúið hlaupahjól.
Morten Lange, 15.7.2010 kl. 11:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.